Æfing

Ég kem sjálfri mér sífellt á óvart...byrjuð að blogga...ég sjálf sem hræðist tölvu meira en risaeðlu !

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Birgisdóttir

Glæsilegt hjá þér mamma mín.

Helga Birgisdóttir, 16.2.2008 kl. 18:10

2 identicon

hæ bjútí....ég er búin að finna þig...

sverrir sæti (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 18:22

3 identicon

Vá................ á nú að æfa sig að fara út fyrir þægindahringinn áður en stóra stökkið er tekið yfir hálfan hnöttinn til Japans. Stöðugt að sýna nýja hliðar flott.....Hlakka til að koma í kaffi og konfekt á vinnustofuna þína á morgun og skoða listaverkin. Ragga

Ragga (IP-tala skráð) 16.2.2008 kl. 23:52

4 identicon

Eins gott að þú hræðist tölvur meira en risaeðlur því þær eru á leiðinni................Ragga

Tvær áður óþekktar risaeðlur hafa fundistmynd

Vísindamenn frá Bretlandi og Bandaríkjunum hafa fundið steingerfinga af tveimur áður óþekktum risaeðlum. Fundust steingerfingarnir í Sahara-eyðimörkinni innan landamæra Niger.

Að sögn vísindamannana bendir allt til að önnur risaeðlan hafi verið hrææta, svipað og hýenur eru í dag. Hin var einnig kjötæta en veiddi sér í matinn.

Leyfar eðlanna tveggja eru um 110 milljón ára gamlar eða frá Krítartímabilinu. Hræætan hefur hlotið nafnið Kryptops palaios eða "gamalt hulið andlit" en dýrið var um 8 metrar á lengd og snoppa þess þakin útistandandi litlum hornum.

Kjötætan hlaut nafnið Eocarcharia dinops eða "brúnaþungur dags hákarl". Hún skartaði tönnum eins og hnífsblöðum og á höfuðkúpunni var þykk beinabrún sem hugsanlega hefur verið notuð til að stanga önnur karldýr yfir fengitímann.

Ragga (IP-tala skráð) 17.2.2008 kl. 00:35

5 identicon

Hæ Helga takk fyri boðið i gær vona að þu hafir nað að gera rifandi bissness kveðja Hanna

Hanna (IP-tala skráð) 18.2.2008 kl. 08:40

6 identicon

Hæ Helga mín og takk fyrir Japanska reynsluflugið á mið.!

Þú ert nú meiri hetjan að leggjast í bloggerð, ég hlakka mikið til að lesa allt um Japan sem á eftir að vera skemmtilegt.. þú með þinn eðalhúmor!! Gangi þér vel Helga mín með allt og ég ítreka aðdáun mína á Japanska lestarkerfinu..

Bless kex,

þín Berglind

Berglind Jónsdóttir (IP-tala skráð) 22.2.2008 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband